Skráningarsíða Íslensku
tónlistarverðlaunanna er nú opin fyrir verk ársins 2010
Processions - Live - ITV 2010 from Hljomgrunnur Samtóns on Vimeo.
Dreamin' - Feldberg from Hljomgrunnur Samtóns on Vimeo.
Dikta - Thank You - Live - ÍTV 2010 from Hljomgrunnur Samtóns on Vimeo.
Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir verk ársins 2009 voru afhent í íslensku Óperunni laugardaginn 13. mars 2010 í beinni og opinni dagskrá á Stöð 2
Vinningshafar:
Vinningshafar:
Umslag ársins:
Swordplay and guitarslay - Retrön - Arnar Ingi Viðarsson, Kári Halldórsson og Kolbeinn Hugi Höskuldsson hönnuðu. Nördaleg einlægni geislar af þessari vísun í Dungeons & Dragons spil níunda áratugarins. Umslagið er umbreytanlegt í kastalavirki með sýki og öllu. Mjög viðeigandi með ævintýralegum metalnum á plötunni.Bjartasta vonin:
Sudden Weather Change. Kraftmikil gítarsveit undir áhrifum frá amerísku jaðarrokki. Fyrsta platan þeirra er ekkert slor, en jafnast þó ekki á við kraftinn og spilagleðina sem einkennir þá fimmmenninga á tónleikum.Rödd ársins:
Sigríður Thorlacius, fyrir söng sinn með Hjaltalín og á plötunni Á ljúflingshól með Heiðurspiltum. Sigríður hefur fallega rödd og skýra og áreynslulausa framsetningu.Tónlistarflytjandi ársins:
Davíð Þór Jónsson, fyrir fjölþreifni til hljóðfæra, fjölhæfni í stíltegundum tónlistarinnar og eiginleikann að virðast geta komið fram á mörgum stöðum í einu.Höfundur ársins:
Daníel Bjarnason, fyrir tónverkin á plötunni Processions. Tónlist Daníels er kraftmikil, dansar á mörkum ótal landamæra og er afar persónuleg.
Tónverk ársins:
Bow to string, eftir Daníel Bjarnason. Verk Daníels er geysifallegt og um leið nútímalegt og persónulegt. Verkið verður án efa einn af hornsteinum verkasafns Daníels og er um leið þýðingarmikil viðbót í safn íslenskrar sellótónlistar. Verkið er rómantík á nútíma vísu.Lag ársins:
Dreamin‘, lag og texti: Rósa Birgitta Ísfeld og Einar Tönsberg, flytjendur: Feldberg.Sígild tónlist og samtímatónlist - Plata ársins:
Haydn píanókonsertar - Edda Erlendsdóttir píanóleikari og Sinfóníuhljómsveit Íslands, útgefandi: Erma. Edda Erlendsdóttir túlkar fjóra píanókonserta Haydns af mikilli fágun og innlifun en hún hefur áður sýnt næman skilning á höfundarverki hans. Túlkun Sinfóníuhljómsveitar Íslands er sömuleiðis leikandi létt og býr yfir smitandi leikgleði. Hljóðritun afbragðs góðJazzplata ársins:
Adhd - Adhd, útgefandi ADHD. Lágstemmd og spennuþrungin í senn. Ákaflega vel spilandi kvartett sem galdrar fram stemmningar í hróplegu ósamræmi við nafn hljómsveitarinnar.Poppplata ársins:
Terminal - Hjaltalín, útgefandi: Borgin. Á Terminal heldur Hjaltalín áfram að vinna með kammerpoppið sem þau kynntu til sögunnar á Sleepdrunk Seasons, en á Terminal eru lögin fágaðri og meira unnin auk þess sem á plötunni má greina áhrif frá söngleikjatónlist og eðalpoppi sjöunda áratugarins. Sérstaklega heilsteypt og öflug plata.
Vinsælasti flytjandinn á vefnum Tónlist.is og í símakosningu ÍTV var valin hljómsveitin DIKTA
Reykjavík loftbrú veitti Emilíönu Torrini veglegan ferðastyrk sem viðurkenningu fyrir glæsilegan árangur hennar erlendis
Tónlist.is veitti Ólafi Arnalds netverðlaun ársins fyrir glæsilegan árangur við kynningu á tónlist sinni á veraldarvefnum
Jón Nordal fékk heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna 2010
Íslensku tónlistarverðlaunin óska verðlaunahöfum til hamingju með glæsilegt framlag sitt til íslenskrar tónlistar
ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN 2010
TILNEFNINGAR OG UMSAGNIR DÓMNEFNDAR
UMSLAG ÁRSINS:
- ADHD – ADHD - Ísak Winther hannaði. Tæknilegur mínimalismi af bestu gerð. Hér eru form og fletir skekktir án þess þó að að maður taki eftir því, minna verður meira og niðurstaðan er ótilgerðarleg umgjörð sem á vel við tónlistina.
- Stop! Hand Grenade in the Name of Crib Death ‘nderstand - Sudden Weather Change - Oddur Guðmundsson, Logi Höskuldsson, Benjamin Mark Stacey, Klængur Gunnarsson, Bergur Andersen, Dagur Sævarsson og Hörður Sveinsson hönnuðu. Eins og tónlistin, er umslagið hörð, strákaleg og skemmtilega kæruleysisleg strákalist. Þarna er líka mikil fjölbreytni innan rammans, enda unnið í samvinnu af öllum meðlimum sveitarinnar.
- IV – Hjálmar - Davíð Örn Halldórsson hannaði. Málverk Davíðs Arnar renna furðulega vel við ferðaljósmyndir sveitarinnar úr heimahögum reggísins, Jamaíku. Portrett af flytjendunum ásamt lagatextum gerir heildarmyndina síðan mátulega persónulega.
- Einn heima ep - Prins Póló - Svavar Pétur Eysteinsson (Prins Póló) hannaði. Frontur og bakkápa virka á mann eins og tveir góðir atómbrandarar. Íslenskur einkahúmor og einfaldur absúrdismi haldast hönd í hönd.
- Swordplay and guitarslay - Retrön - Arnar Ingi Viðarsson, Kári Halldórsson og Kolbeinn Hugi Höskuldsson hönnuðu. Nördaleg einlægni geislar af þessari vísun í Dungeons & Dragons spil níunda áratugarins. Umslagið er umbreytanlegt í kastalavirki með sýki og öllu. Mjög viðeigandi með ævintýralegum metalnum á plötunni.
- Riceboy Sleeps - Jónsi og Alex - Jón Þór Birgisson og Alex Somers hönnuðu. Dulúð er ríkjandi í umslagi þessu, sem hannað er af flytjendunum sjálfum. Forsíðumyndin kallar fram draumkennda fegurð og ljúfsáran óhugnað í senn.
- Sturlunga - Voces Thules - Brynja Baldursdóttir hannaði. Umslag sem þjónar tilgangi, bæði menningarlega og fagurfræðilega. Í þessum þarfa pakka er að finna forna kvæðatexta ásamt hugleiðingum fræðifólks. Örlygstaðabardaga eru gerð góð skil og þjóðararfinum þjónað.
BJARTASTA VONIN:
- Pascal Pinon. Þrátt fyrir að hæverska og jafnvel feimni hafi verið áberandi í fari hljómsveitarinnar Pascal Pinon hefur hún skyggt á marga háværari tónlistarmenn. Tónlistin er lágstemmd og yfirlætislaus, dálítið ,,skólastofuleg", en skemmtilega útsett og krydduð launfyndnum, skemmtilegum og aðallega íslenskum textum.
- Sudden Weather Change. Kraftmikil gítarsveit undir áhrifum frá amerísku jaðarrokki. Fyrsta platan þeirra er ekkert slor, en jafnast þó ekki á við kraftinn og spilagleðina sem einkennir þá fimmmenninga á tónleikum.
- Sykur sýndi það bæði á sinni fyrstu plötu, Frábært eða frábært og á tónleikum að hún er ein af skemmtilegri poppsveitum landsins. Flottir taktar, frísklegur hljómur og lífleg sviðsframkoma eru aðalsmerki Sykurs.
- Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari hefur sýnt það og sannað að hún er glæsilegur flytjandi, með mikið næmi og skilning á þeim verkefnum sem hún tekst á við en tæp tvö ár eru liðin frá því hún lauk námi við Juilliard-tónlistarskólann í New York. Hún hefur á valdi sínu víðfema verkaskrá en hún hefur einbeitt sér að túlkun og flutningi samtímatónlistar meðfram tónlist fyrri tíma.
- Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommuleikari, snýr aftur úr framhaldsnámi í músík og stimplar sig inn með öflugu tónleikahaldi og plötu með eigin tónlist.
RÖDD ÁRSINS:
- Ágúst Ólafsson, fyrir frábæra frammistöðu á óperusviði og á ýmsum tónleikum. Ágúst býr yfir mikilli dýpt og breidd sem túlkandi.
- Haukur Heiðar Hauksson, fyrir tilfinningaríkan og vel útfærðan söng. Haukur Heiðar syngur áreynslulaust og lyftir tónlistinni með góðri túlkun sinni.
- Jóhann G. Jóhannsson, fyrir magnaða endurkomu. Jóhann G. var forsprakki Óðmanna og stóð upp úr sem einn besti poppsöngvari landsins. Þrátt fyrir langt hlé sýnir Jóhann G. að hann er enn í fremstu röð.
- Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, fyrir glæsilega frammistöðu í Eurovision. Jóhanna Guðrún er búin að vera góð lengi og sýndi það þegar hún fékk stóra tækifærið að hún er fyrsta flokks.
- Sigríður Thorlacius, fyrir söng sinn með Hjaltalín og á plötunni Á ljúflingshól með Heiðurspiltum. Sigríður hefur fallega rödd og skýra og áreynslulausa framsetningu.
- Sigurlaug Gísladóttir (Mr. Silla), fyrir söng sinn með hljómsveitinni Múm. Afar persónuleg og spennandi söngkona sem er sífellt að bæta sig.
- Þóra Einarsdóttir, fyrir hlutverk sín í Íslensku óperunni og í titilhlutverkinu í óratoríunni Cecilia. Þóra Einarsdóttir er söngkona á heimsmælikvarða.
TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS:
- Davíð Þór Jónsson, fyrir fjölþreifni til hljóðfæra, fjölhæfni í stíltegundum tónlistarinnar og eiginleikann að virðast geta komið fram á mörgum stöðum í einu.
- Ghostigital, fyrir tónleika á Iceland Airwaves.
- Hjaltalín, fyrir tónleika á Listahátíð í Rvk og í Fríkirkjunni á Iceland Airwaves
- Retro Belfast (Retro Stefson og FM Belfast), fyrir frumlega samræmingu og samruna á tónleikum
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, fyrir eftirminnilega tónleika með Gennady Rozhdestvensky á Listahátíð og Daníel Bjarnasyni og Víkingi Heiðari á Myrkum Músíkdögum.
- Vikingur Heiðar Ólafsson, fyrir magnaðan píanóleik á tónleikum sínum á árinu, bæði sem einleikari og með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
HÖFUNDUR ÁRSINS:
- Daníel Bjarnason, fyrir tónverkin á plötunni Processions. Tónlist Daníels er kraftmikil, dansar á mörkum ótal landamæra og er afar persónuleg.
- Einar Tönsberg, fyrir tónverkin á plötunum Antidode með Eberg og Don't be a stranger með Feldberg. Einar kann betur en flestir þá list að setja saman popplög sem virka. Hann er mjög melódískur, en líka frjór og leitandi þegar það kemur að hljómi og útsetningum.
- Hafdís Bjarnadóttir, fyrir tónverkin á plötunni Jæja. Þó að tónsmíðar Hafdísar á Jæja fari út um víðan völl og greina megi í þeim áhrif jafnt frá djassi, þjóðlegri tónlist og poppi þá eiga þær það sameiginlegt að vera góð blanda af smekkvísi og tilraunamennsku.
- Hildur Guðnadóttir, fyrir tónverkin á plötunni Without sinking. Djörf, heildstæð og afar persónuleg plata.
- Högni Egilsson og Hjaltalín með aðstoð Róberts Reynissonar og Örvars Þóreyjarsonar Smárasonar, fyrir tónverkin á plötunni Terminal með Hjaltalín. Fjölbreytt úrvinnsla á hinu hefbundna í bland við kraftmikla nýsköpun.
- Örvar Þóreyjarson Smárason og Gunnar Örn Tynes, fyrir tónverkin á plötunni Sing along to songs you don't know með múm. Grípandi, tilraunakennd, framsækin og full af lífsgleði.
TÓNVERK ÁRSINS:
- Bow to string, eftir Daníel Bjarnason. Verk Daníels er geysifallegt og um leið nútímalegt og persónulegt. Verkið verður án efa einn af hornsteinum verkasafns Daníels og er um leið þýðingarmikil viðbót í safn íslenskrar sellótónlistar. Verkið er rómantík á nútíma vísu.
- Bæn, eftir Gunnar Þórðarson. Í verkinu sýnir Gunnar Þórðarson sannarlega hvers af honum má vænta á sviði klassískrar tónlistar. Bæn er íhugult verk, melódískt og ljóðrænt.
- Cecilia, eftir Áskel Másson. Óratoría Áskels um heilaga Sesselju, verndardýrling tónlistarinnar er áhrifamikið verk markað ljóðrænni litadýrð og dulrænni dýpt. Í verkinu skapar Áskell heillandi hljóðheim og þaulhugsuð form – nútímalegan stíl, þótt efniviðurinn sé byggður á fornum minnum.
- Processions, eftir Daníel Bjarnason. Glæsilegur píanókonsert þar sem Daníel teflir fram andstæðum blæbrigðum þess næma og kyrrláta gegn krafti og ofsa og hrífandi blæbrigðum í samspili einleikara og hljómsveitar.
LAG ÁRSINS:
- Crazy like a bee, lag og texti: Egill Sæbjörnsson, flytjandi: Egill S.
- Digging up a tree, lag og texti: Helgi Hrafn Jónsson,flytjandi: Helgi Hrafn Jónsson.
- Dreamin‘, lag og texti: Rósa Birgitta Ísfeld og Einar Tönsberg, flytjendur: Feldberg.
- Suitcase man, lag: Hjaltalín, texti: Örvar Þóreyjarson Smárason, flytjendur: Hjaltalín.
- This heart, lag og texti: Bloodgroup, flytjandi: Bloodgroup.
- Taktu þessa trommu, lag og texti: Þorsteinn Einarsson, flytjendur: Hjálmar.
SÍGILD TÓNLIST OG SAMTÍMATÓNLIST – PLATA ÁRSINS:
- By the throat - Ben Frost, útgefandi: Bedroom Community. Tónlist Ben Frost er kraftmikil og djúphugsuð án nokkurra málamiðlana. Höfundareinkenni hans eru skýr; áhugaverður samruni lífrænna og ólífrænna hljóða, hávaðatónlistar, sígildrar tónlistar, rafrænu. Þetta er sjötta breiðskífa Ben Frost. Plöturnar eiga það sammerkt að mynda eina samfellda heild og nýja platan er engin undantekning þar á. Hljóð- og eftirvinnsla eins og best verður á kosið og myndræn umgjörð plötunnar er í nánu samtali við tónlistina sjálfa.
- Debut - Víkingur Heiðar Ólafsson, útgefandi: Hands On Music. Verkefnaval Víkings Heiðars á þessari plötu er metnaðarfullt og hann tekst á við verk Beethovens og Brahms af mikilli dýpt og þokka. Eins og heiti plötunnar ber með sér er þetta fyrsta plata Víkings en hann hefur fyrir nokkru markað sér sess sem einn af færustu og áhugaverðustu tónlistarmönnum þjóðarinnar, þrátt fyrir ungan aldur.
- Guiliani, Sor, Aguado, Carcassi - Kristinn Árnason, útgefandi: 12 tónar. Kristinn H. Árnason leikur af miklu listfengi og næmi fyrir blæbrigðum í stíl. Hann sýnir hér enn og aftur með tæknilegri færni og persónulegri túlkun sinni á klassískum gítarverkum, að hann er í fremstu röð íslenskra tónlistarmanna.
- Haydn píanókonsertar - Edda Erlendsdóttir píanóleikari og Sinfóníuhljómsveit Íslands, útgefandi: Erma. Edda Erlendsdóttir túlkar fjóra píanókonserta Haydns af mikilli fágun og innlifun en hún hefur áður sýnt næman skilning á höfundarverki hans. Túlkun Sinfóníuhljómsveitar Íslands er sömuleiðis leikandi létt og býr yfir smitandi leikgleði. Hljóðritun afbragðs góð
- Processions - Daníel Bjarnason, útgefandi: Bedroom Community. Á þessari plötu er að finna þrjú verk eftir Daníel Bjarnason en hann hefur markað sér sess sem eitt af áhugaverðustu tónskáldum af yngri kynslóð. Tónlist hans dansar á mörkum ótal landamæra og er illflokkanleg. Verkin þrjú eru ekki tengd innbyrðis en mynda engu að síður áhugaverða og fallega heild. Flutningur einleikara og Sinfóníuhljómsveitar Íslands er í hæsta gæðaflokki og það sama má segja um hljóðvinnslu og umgjörð plötunnar.
- Without sinking - Hildur Guðnadóttir, útgefandi: Touch. Þetta er önnur breiðskífa Hildar en áður sendi hún frá sér plötuna Lost in Hildurness árið 2006. Hljóðheimurinn á nýju plötunni er heillandi og ákaflega sterkur og verkin á plötunni mynda samfellda og sannfærandi heild þar sem selló tónlistarkonunnar er í lykilhlutverki. Hildur skapar sér sérstöðu með þessu djarfa verki og stígur fram sem þroskaður listamaður. Umgjörð og hljóðvinnsla ákaflega vel úr garði gerð.
JAZZPLATA ÁRSINS:
- Adhd - Adhd, útgefandi ADHD. Lágstemmd og spennuþrungin í senn. Ákaflega vel spilandi kvartett sem galdrar fram stemmningar í hróplegu ósamræmi við nafn hljómsveitarinnar.
- Jæja - Hafdís Bjarndóttir, útgefandi: Hafdís Bjarnadóttir. Hafdís hikar ekki við að leika sér á landamærum saminnar og spunninnar tónlistar. Nýstárlegar hljóðfærasamsetningar og spennandi hljóðheimur.
- Mæri - Árni Heiðar Karlsson, útgefandi: Dimma. Melódískur jazz, framandi og kunnuglegur í senn. Píanótríóið er einn af hornsteinum jazzins og Árni Heiðar tekst á við þetta krefjandi form af næmni og smekkvísi.
- Spirit of Iceland - Stórsveit Reykajvikur ásamt Bob Mintzer, útgefandi: Stórsveit Reykjavíkur. Stórsveitin festir sig í sessi sem ein mikilvægasta hljómsveit landsins. Með aðkomu Mintzers að íslenskum þjóðararfi sannast að glöggt er gests augað. Framúrskarandi flutningur og sérlega áhugavert hvernig þjóðlegt efni getur tekið alþjóðlegum stakkaskiptum.
POPPPLATA ÁRSINS:
- Amanita Muscaria - Lights on the Highway, útgefandi: Lights on the Highway.
Með Amanita Muscaria sannar hljómsveitin, að hún hefur frá útkomu fyrri plötu sinnar (2005) þroskast frá því að vera efnileg og upp í efsta gæðaflokk í íslenskri dægurlagatónlist. Tónlistin er einhverskonar blanda af hippatónlist 6. og 7. áratugarins og gruggtónlist Seattle-sveitanna frá þeim 9. og 10.; lagasmíðar og útsetningar eru fjölbreittar, hljóðfæraleikur til fyrirmyndar og söngur einstaklega góður. - Don't be a stranger - Feldberg, útgefandi: Cod Music. Samstarf Einars „Eberg“ Tönsberg og Rósu Ísfeld úr Sometime skilaði einni af bestu popp-plötum ársins. Grípandi lagasmíðar, flottur hljómur og karakterríkur söngur.
- Dry land - Bloodgroup, útgefandi Record Records. Með Dry Land hætti Bloodgroup að vera efnileg og varð góð. Þau hafa ekki glatað smekknum fyrir stuðmiklu rafpoppi, en á Dry Land er hljóðheimurinn ríkari og lagasmíðarnar þróaðri.
- Easy music for difficult people -Kimono, útgefandi: Kimi. Eins og áður eru sérkenni Kimono á Easy music for difficult people, góðar lagasmíðar og flottar pælingar í hljóðfæraleik og útsetningum. Hljómsveit með sterk karaktereinkenni, en samt í þróun.
- Get it together - Dikta, Útgefandi: Kölski. Dikta fetar sig áfram upp á við í einkennandi lagasmíðum, þéttri spilamennsku og firnagóðri framsetningu á Get it together. Hljómurinn er til stakrar fyrirmyndar og allt yfirbragð plötunnar mjög sannfærandi.
- Sing along to songs you don't know - Múm, útgefandi: Borgin. Sing along to songs you don't know sýnir að Múm er hljómsveit í stöðugri þróun. Tónlistin er mun fjölbreyttari en áður, en jafn framsækin. Hugmyndaauðgi Múm-liða kemur bæði fram í hljóðfæraskipaninni, útsetningunum og sjálfum lagasmíðunum.
- Terminal - Hjaltalín, útgefandi: Borgin. Á Terminal heldur Hjaltalín áfram að vinna með kammerpoppið sem þau kynntu til sögunnar á Sleepdrunk Seasons, en á Terminal eru lögin fágaðri og meira unnin auk þess sem á plötunni má greina áhrif frá söngleikjatónlist og eðalpoppi sjöunda áratugarins. Sérstaklega heilsteypt og öflug plata.
- IV - Hjálmar, útgefandi:Borgin. Eftir þrjár vel heppnaðar alíslenskar reggíplötur fóru Hjálmar til höfuðborgar reggítónlistarinnar, Kingston á Jamaíka til að vinna plötu númr fjögur. Það heyrist á IV. Lagasmíðarnar eru jafn traustar og áður, en nú er hljóðheimurinn litaður af ósviknum hljóðversgöldrum frá Kingston.
Dómnefnd:
Andrea Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir
Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Einar Bárðarson
Hugleikur Dagsson
Jónatan Garðarsson
Trausti Júlíusson
Ritari: Pétur Grétarsson
Íslensku tónlistarverðlaunin
fyrir verk ársins 2008
voru afhent í Sjónvarpssal 18. febrúar 2009
Verðlaunahafar:
Tónverk ársins-ORA eftir Áskel Másson
Myndband ársins-Björk og Encyclopedia Pictura fyrir Wanderlust
Plötuumslag ársins-Kate vonHarreveld og Helgi Þórsson fyrir Demoni Paradiso (Evil Madness)
Bjartasta vonin-Agent Fresco
Tónlistarflytjandi ársins-Anna Guðný Guðmundsdóttir
Rödd ársins-Emilíana Torrini
Lag ársins-"Þú komst við hjartað í mér",höfundar: Páll Óskar, Toggi og Bjarki
Jazz, plata ársins-Fram af, Ómar Guðjónsson
Sígild/samtímatónlist, plata ársins-Fordlandia, Jóhann Jóhannsson
Popp/rokk, plata ársins-Með suð í eyrum við spilum endalaust, Sigur Rós
Reykjavík/Loftbrú hefur endurnýjað samning sinn við íslenskt tónlistarlíf
og veitti Mugison loftbrúarverðlaun ársins
Bagglútur hlaut netverðlaun tonlist.is
Vinsælasti flytjandinn að mati áhorfenda og lesenda visir.is var Baggalútur
Músíktilraunir hlutu hvatningarverðlaun Samtóns
Heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna hlaut Ingólfur Guðbrandsson
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í 14. skipti í Borgarleikhúsinu þriðjudaginn 18. mars 2008
15. íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent 18. febrúar 2009.
Sjónvarpið og ÍTV hafa komist að samkomulagi um að afhending íslensku tónlistarverðlaunanna fari fram í Ríkissjónvarpinu miðvikudaginn 18. febrúar nk. Við erum þakklát Rúv fyrir að taka saman höndum með okkur og hlökkum til að setja af þessu tilefni saman dagskrá sem verður íslensku tónlistarlífi til sóma.Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur föstudaginn 12.12. 2008 sl.
Andrea Jónsdóttir útvarpskona var heiðruð fyrir framlag sitt til eflingar íslenskrar tónlistar og sæmd Bjarkarlaufinu.
Dagurinn var helgaður minningu Rúnars Júlíussonar sem var jarðsunginn þann sama dag.
Hér má lesa pistil Valgeirs Guðjónssonar sem hann setti saman í tilefni þess að Rúnar hlaut heiðursverðaun íslensku tónlistarverðlaunanna í mars sl.
- lesa -
Tilnefningar verka ársins 2008
Bjartasta vonin
Klive, sem er listamannsnafn Úlfs Hanssonar, sýnir mikinn þroska á fyrstu breiðskífu sinni. Hann stundar nám í tónsmíðum í Listaháskóla Íslands og sannar að hann er þess megnugur að hugsa út fyrir fyrirfram ákveðinn ramma. Frumburður Klive er öflug raftónlistarplata sem gefur góð fyrirheit um framtíðina.Agent Fresco sigraði árið 2008 bæði í Músíktilraunum og íslensku forkeppninni fyrir alþjóðlegu keppninna ,,Battle of the Bands”; kröftug og þétt sveit með góðum hljóðfæraleikurum og söngvara með sterkan ,,karakter” sem gefur sig allan á sviði. Agent Fresco ber með sér ferska strauma og virðist hljómsveitin líkleg til frekari afreka á næstu misserum.
Retro Stefson hefur sinnt tónleikahaldi af krafti á seinni hluta árs 2008. Fyrsta breiðskífa þessa fríska hóps er mjög markvert framlag til íslenskrar popptónlistar. Tónlist hljómsveitarinnar er fjölbreytt og lífleg og framfarirnar hafa verið stöðugar allt frá því að Retro Stefson fór að troða upp þegar liðsmenn voru nemendur í Austurbæjarskólanum.
Dísa (Bryndís Jakobsdóttir) er óvenju þroskuð söngkona og túlkandi sem hefur ótrúlega góð tök á laga- og textagerð miðað við ungan aldur. Hún nálgast dægurtónlistina á persónulegan og skapandi hátt og gerir greinilega miklar kröfur til sjálfrar sín.
FM Belfast. Sjaldan hefur hljómsveit komið með eins ferskan og glaðværan andblæ inn í íslenskt tónlistarlíf og FM Belfast hefur gert. Tónlistarstefnan hefur verið að mótast í nokkurn tíma og náði nýjum hæðum á plötunni How To Make Friends.
Tónverk ársins
ORA – Áskell MássonORA er konsert fyrir sex slagverksleikara og sinfóníuhljómsveit sem var frumfluttur í maí 2008 af slagverkshópnum Kroumata og Sinfóníuhjómsveitinni í Lathi í Finnlandi undir stjórn Osmos Vänskä; áhrifamikið, heillandi og ágengt verk sem hefur vakið verðskuldaða athygli.
Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands – Karólína Eiríksdóttir
Karólína samdi verkið að beiðni myndlistarparsins Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar og varð það flutt sem hluti myndlistarsýningarinnar Bæ-Bæ Ísland. Allar greinar stjórnaskrárinnar voru sungnar af sópran, barítón og blönduðum kór við píanó- og kontrabassa undirleik. Óvenjulegt og ögrandi verk, þrungið innri spennu.
Sinfónía nr. 4 – John Speight
Sínfónía í fimm þáttum sem var samin á árunum 2003 til 2007 undir áhrifum frá firrtum heimi, á meðan stórveldin háðu tilgangslaust stríð gegn hryðjuverkum sem höfðu áhrif á fólk um allan heim. Sinfónían var frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands á Myrkum músíkdögum í febrúar 2008.
Plata ársins - Jazz
Fram af – Ómar GuðjónssonÓmar Guðjónsson er hugmyndaríkur höfundur sem smíðar áhugaverða djassópusa með mjög persónubundnum blæ. Tónlistarflutningur Ómars, Þorgríms Jónssonar og Matthíasar Hemstock skilar góðu verki alla leið.
Í tímans rás – Villi Valli
Villi Valli varpar ljósi á tíðaranda í tónlist sem er óðum að hverfa. Hann nýtur aðstoðar yngra fólks sem vinnur vel úr hugmyndum höfundarins. Heillandi og einlæg plata sem dregur upp lifandi tónmyndir sem spanna breitt svið.
Blátt ljós – Sigurður Flosason
Sigurður vann með sama kvartett á plötunni Bláum skuggum. Honum tekst vel upp í tónsmíðunum og spilverk Sigurðar sjálfs, Péturs Östlund, Jóns Páls Bjarnasonar og Þóris Baldurssonar er fyrsta flokks.
Plata ársins - Sígild
og samtímatónlist
Apocrypha – Hugi
Guðmundsson
Apocrypha sameinar hefðir sígildra gilda og nútímalegrar tónhugsunar á töfrandi hátt. Verkið krefst mikils af flytjendunum sem standa undir þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar. Samleikurinn skilar hugblæ verksins á mjög sannfærandi hátt.
Fordlandia – Jóhann Jóhannsson
Jóhann heldur áfram að spinna þráð í tónvefnað sem tekur á sig heildrænni umgjörð með hverju nýju verki. Rólyndisleg og seiðandi tónlist hans verður sífellt ágengari með jafnri stígandi á yfirlætislausan og draumkenndan máta.
Demoni Paradiso – Evil Madness
Rafrænn tónspuni sem minnir á brautryðjendur rafsveims og ,,goth”-rokks frá áttunda áratugnum. Hughrif frá hryllingsmyndatónlist og ,,elektró”-poppi blandast þannig að úr verður svífandi og hrynræn tónflétta.
Ró – Mógil
Tilraunkenndur djass með þjóðlegum og klassískum undirtóni er einskonar samnefnari tónsköpunar Mógils. Byggt er á gömlum íslenskum vísnastefjum í bland við nýjan kveðskap sem fær ferskan svip sem skilar sér á áhugaverðri plötu.
All sounds to silence come – Kammersveitin Ísafold
Kammersveitin Ísafold túlkar samtíma- og tuttugustu aldar tónlist af miklum metnaði. Ógnir og umbrot nýliðinnar aldar höfðu mikil áhrif á tónskáldin sem eiga verk á plötunni. Spennuþrungið andrúm þeirra skilar sér í vönduðum samleik.
Plata ársins – Popp/Rokk
Falcon Christ –
Dr. Spock
Stórt skref fram á við hjá Dr. Spock sem í upphafi ferilsins var mikið að stæla og skrumskæla. Á Falcon Christ er sveitin búin að skapa sinn eiginn stíl og á sama tíma er tónlistin orðin þéttari, kraftmeiri og villtari.
Fjórir naglar – Bubbi Morthens
Bubbi hefur ætíð verið leitandi í list sinni og kunnað að velja sér samstarfsfólk sem víkkar sjóndeildarhringinn. Pétur Ben veitir honum lið á Fjórum nöglum og þeir skapa fantagóða blöndu af poppi, nýbylgjurokki, ,,gospel”- og ,,soul”-tónlist. Hljómurinn er hrár, útsetningar fjölbreyttar og flutningurinn lifandi.
Jeff Who? – Jeff Who?
Einn helsti styrkleiki Jeff Who? er hæfileiki liðsmanna til að semja grípandi og upplífgandi rokklög. Eins og fyrri plata sveitarinnar er Jeff Who? full af lögum sem auðvelt er að fá á heilann.
Karkari – Mammút
Það er greinilegt að Mammút hefur notað tímann frá fyrstu plötunni vel. Á Karkara er rokkið fjölbreyttara og spilamennskan þéttari. Söngkonan Katrína Mogensen sýnir líka hvers hún er megnug; rödd hennar er sérstök og áhrifamikil.
Me and Armini – Emilíana Torrini
Á Me and Armini segir Emilíana Torrini skilið við rólegheitin sem einkenndu Fisherman's Woman og sendir frá sér fjölbreytta og líflega plötu sem hefur að geyma allt frá reggíi yfir í bílskúrsrokk.
Með suð í eyrum við spilum endalaust – Sigur Rós
Sigur Rós stígur stórt skref í átt til nýrra hluta sem veitir þeim ótal nýja möguleika. Þeir opna gluggann upp á gátt á plötu sem er dálítið ,,bítlaleg” á köflum, enda unnin að hluta til í Abbey Road hljóðverinu. Með suð... er alþýðalegt listaverk frá einni af bestu hljómsveitum Íslandssögunnar.
Skiptar skoðanir – Múgsefjun
Tónlistin á Skiptum skoðunum er skemmtilegt sambland af poppi, ,,indí”-rokki og þjóðlagatónlist. Óvenjuleg hljóðfæraskipan setur sterkan svip á útkomuna. Hér hjálpast allt að: texta- og lagasmíðar eru góðar, uppbygging laganna oft skemmtileg og útsetningar áhugaverðar.
Rödd ársins
Emilíana TorriniEmilíana byrjaði ung að syngja og hefur vaxið með hverju nýju verkefni sem hún hefur tekið sér fyrir hendur og er svo sannarlega komin í fremstu röð sem söngkona og flytjandi. Á nýjustu plötunni sinni dustar hún rykið af stórsöngkonutöktunum sem blunda í barka hennar en hún hefur ekki beitt mikið eftir að hún varð alþjóðlegur listamaður.
Páll Óskar Hjálmtýsson
Það er leitun að söngvara sem nýtur annarra eins vinsælda meðal fólks á öllum aldri. Páll Óskar kann þá list manna best að skemmta og nýtur þess til fullnustu.
Egill Ólafsson
Egill er fulltrúi allra tíma í tónlist og sýndi enn á ný á þessu ári, t.d. með Þursaflokknum, hversu mikið vald hann hefur á röddinni, túlkun söngtexta og leikrænum þáttum tónlistarflutnings.
Katrína Mogensen
Katrína stendur fullkomlega undir því lofi sem á hana var borið þegar Mammút vann í Músíktilraunum árið 2004. Hún á stóran þátt í hversu vel tekst til á nýju Mammút-plötunni, Karkari.
Jón Þór Birgisson
Með magnaðri söngrödd og einstakri tjáningu hefur Jónsi í Sigur Rós haft áhrif langt út fyrir landsteinana svo að eftir hefur verið tekið um víða veröld.
Lag ársins
Gobbledigook – Sigur RósGobbeldigook er gjörólíkt öðru efni sem Sigur Rós hefur sent frá sér. Óvenjuleg smíð sem einkennist af flottum takti, tralli, klappi og skemmtilegri raddsetningu.
Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn – Bragi Valdimar Skúlason
Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn gæti verið einkennislag nýliðins útrásartíma. Óborganlegur textinn fær aukna vigt með frábærum flutningi.
Inní mér syngur vitleysingur – Sigur Rós
Virkilega gott, framúrsækið popplag með frumlegum texta…ef ekki ljóði; er þetta innrím eða endarím eða vitleysa…eða allt í einu? Sigur Rós sameinar hér framsækna tónlist og skemmtilegt lag við alþýðu skap.
Kalin slóð – Múgsefjun
Múgsefjun stimplaði sig sterklega inn á sinni fyrstu plötu hjá íslensku þjóðinni með þessu lagi, sem ber einkenni lagasmíða sveitarinnar: Kaflaskipt, þjóðlegt lag, nútímalegt, með góðu viðlagi og áhugaverðum og vel sömdum texta.
Þú komst við hjartað í mér – Toggi og Páll Óskar
Páll Óskar var með þetta lag á sinni vinsælu plötu Allt fyrir ástina, sem kom út 2007. Hjaltalíns-fólk sá fegurðina í lagi og texta færði það enn nær hjarta þjóðarinnar í rólegri útgáfu sinni; börn, gamalmenni og allir þar á milli sungu með.
Tónlistarflytjandi ársins
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari– fyrir heildarflutning á tónverkinu Tuttugu tillit til Jesúbarnsins eftir Olivier Messiaen. Einstakur listviðburður og mögnuð listræn upplifun.Að baki liggur djúpt innsæi Önnu Guðnýjar í tónlistina, óbrigðul færni og þrotlaus vinna í rúmt ár.
Björk
– fyrir tónleika í Langholtskirkju og Náttúrutónleika í Laugardal. Björk og félagar buðu landsmönnum á ókeypis tónleika í Laugardalnum 28. júní og luku 17 mánaða tónleikaferðalagi víða um heim á tónleikum í Langholtskirkju 26. ágúst 2008.
Þursaflokkurinn og Caput
– fyrir tónleika í Laugardalshöll. Þursaflokkurinn gekk í endurnýjun lífdaga í Laugardalshöll 23. febrúar þar sem tónleikagestir fengu allt sem þeir óskuðu eftir; að upplifa hinn sérstæða Þursaanda sem er engu líkur.
Sigur Rós
– fyrir tónleika í Laugardalshöll og Náttúrutónleika í Laugardal. Sigur Rós skrapp heim til Íslands til að taka þátt í Náttúrutónleikunum í júní og lauk svo heimsferð sinni með einum bestu tónleikum sem haldnir hafa verið í Laugardalshöll þann 23. nóvember.
Dr. Spock
– fyrir tónleikahald á árinu. Dr. Spock bætti sig jafnt og þétt allt árið og sannaði að þrátt fyrir dáraskap og glens er þetta meiriháttar rokksveit sem slær aldrei slöku við og leggur sig fram um að ná hámarskárangri.
Höfundur ársins
Bragi Valdimar SkúlasonBragi Valdimar dregur upp myndrænar og eftirtektarverðar skyndimyndir í orðsnjöllum og fjölbreyttum lögum og söngtextum á barnaplötunni Gilligill og Baggalútsplötunni Nýjasta nýtt.
Sigur Rós
Sigur Rós nær að stækka sjóndeildarhringinn og víkka út laga- og textasmíðar sínar á hugkvæman og húmorískan hátt á plötunni Með suð í eyrum við spilum endalaust.
Áskell Másson
Áskell heldur áfram að vinna með óravíddir slagverksins innan tónaheims sinfóníunnar og tekst að finna nýja og spennandi nálgunarfleti ásláttarhljóðfæra og hefðbundinna sinfónískra hljóðfæra.
Emiliana Torrini
Emiliana sannar á nýjan leik hversu góð tök hún hefur því að setja saman aðgengileg og áhugaverð popplög sem eru bæði fjölbreytt og heildstæð í senn.
Jóhann Jóhannsson
Jóhann fetar sig áfram eftir þeirri braut sem hann hefur mótað á undanförnum árum og semur hugnæma tónlist sem byggir m.a. á sérstæðum atburðum og samfélagslegum stúdíum hans á þeim.
Dómnefnd :
Andrea Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir
Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Jónatan Garðarsson
Ólafur Páll Gunnarsson
Ragnar Kjartansson
Trausti Júlíusson
Formaður:Þorgeir Tryggvason.
Andrea Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir
Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Jónatan Garðarsson
Ólafur Páll Gunnarsson
Ragnar Kjartansson
Trausti Júlíusson
Formaður:Þorgeir Tryggvason.
ELDRI FÆRSLUR
td skilgreiningar og reglur
